Pistlar
Umferðin er stór þáttur í lífi okkar.
þriðjudagur 15. júlí 2008 kl. 15:26
Hvar sem við lítum er fólk á ferð - í umferð. Þjóðin ver þar miklum tíma á degi hverjum. Því er mjög mikilvægt að umferðin sé örugg, að okkur líði þar vel.
Umferðin er samskipti fólks, mjög náin og skiptir öllu máli að þau séu jákvæð, að við sýnum hvert öðru kurteisi og velvild. Í umferðinni ættum við að hafa Gullnu regluna að leiðarljósi: "Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra.".
Umferðin gerir þá kröfu til okkar að við höldum óskertri athygli þegar við erum á ferð. Við megum aldrei líta á umferðina sem tímaþjóf eða afneita því að hún sé nauðsynlegur þáttur í lífi okkar.
Umferðin er oft mjög mikil. Við verðum að fara eftir settum lögum og reglum sem gerð eru - okkur til verndar og lífs. Ef við brjótum umferðarreglu þá vanvirðum við okkur sjálf og aðra.
Umferðin á sér nokkra höfuðóvini, þeir eru: Alkahól og önnur fíkniefni, hraði, farsímar og aðrir þjófar athyglinnar. Eigingirni, tillitsleysi og frekja eru fyrirbæri sem koma líka við sögu umferðaróhappa og slysa.
Verum ávallt jákvæð og tillitssöm í umferðinni það er gott fyrir samferðafólk okkar og okkur sjálf.


