Pistlar
Verum upplýst
föstudagur 31. október 2008 kl. 14:32
Nú fer sá tími í hönd þegar skammdegið er hvað mest og helst er hætta á slysum á gangandi vegfarendum. Ökumenn þurfa á þessum tíma að gæta að hvort ljósabúnaður bifreiða þeirra sé í fullkomnu lagi og gera bætur á því ef með þarf. Þegar snjóað hefur áður en lagt er af stað þurfa ökumenn að hreinsa snjóinn vel af bílum sínum og þá sérstaklega rúðum og ökuljósum. Eins er brýnt að hreinsa rúðuþurrkur vel því að á þessum tíma vilja þær safna á sig tjöru sem gerir það að verkum að ökumenn fá ekki það útsýni sem þeir þurfa til að alls öryggis sé gætt.
Á þessum tíma eru mörg ung börn á leið í skóla og beini ég því til foreldra þeirra að þau séu með góð endurskinsmerki svo að ökumenn sjái þau í tæka tíð, eins er brýnt að þau noti gangbrautir þar sem þær eru fyrir hendi til að tryggja öryggi þeirra enn frekar. Það er brýnt að ökumenn gæti vel af því þegar þeir aka um íbúðargötur þar sem bílum er þétt lagt við gangstéttir að börn eru fljót að skjótast út á milli bílanna sem getur orðið þess valdandi að slys verður á vegfarandanum.
Ökumenn höldum okkur á þeim umferðarhraða sem leyfður er hverju sinni, því að með því getum við fækkað umferðarslysum verulega.
Of mikið ber á að ökumenn noti ekki stefnuljós þegar þeir ætla að breyta um akstursstefnu. Brýnt er að ökumenn noti stefnuljós til þess að gefa til kynna ef þeir ætla að skipta um akgrein eða beygja inn í næstu götu. Ef allir legðust á eitt um að nota stefnuljós þá er nokkuð víst að umferðin gengi betur og hraðar fyrir sig auk þess sem hún yrði öruggari heldur en er í dag.
Eitt er það sem er mjög algengt að sjá í umferðinni í dag, það er ofnotkun þokuljósa. Alltof margir ökumenn hafa kveikt á þokuljósunum þótt engin ástæða sé til. Þokuljós á einungis að nota þegar aðstæður eru þannig að skyggni er slæmt eins og t.d. í þoku, enda gefur nafnið til kynna til hvers þokuljósin eru. Í mörgum tilfellum eru þessi ljós ekki rétt stillt og geta orðið þess valdandi að blinda ökumann þann sem á móti kemur. Hættum þessari ofnotkun á þokuljósum og bætum um leið öryggið í umferðinni.


