Pistlar
Öryggi bifhjóla
fimmtudagur 20. nóvember 2008 kl. 13:40
Eftir Indu Björk Alexandersdóttur, fulltrúa Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Sniglar, í Umferðarráði
Það er að svo mörgu að hyggja þegar talað er um öryggi bifhjóla, Það sem bifhjólafólk hafa unnið að í mörg ár er umferðarátak ár hvert, það eru settar auglýsingar í kvikmyndahús, í fjölmiðla, aftan á strætisvagna og svo lengi má telja. Herjað er á að klæðast fyrir fallið, minnka hraðann og síðast en ekki síst minnt aðra í umferðinni á okkur bifhjólafólkið.
Þegar kemur að öryggi okkar bifhjólafólks þá er mér helst í huga þrennt. Árleg skoðun bifhjóla, víravegriðin og hlífðarfatnaður.
Skoðun bifhjóla hefur verið afar ábótavant í fjöldamörg ár, það er þétt setið um þá skoðunarmenn sem hafa ökuréttindi á bifhjól og komast ekki allir að sem vilja. Því miður þá er hátt prósentuhlutfall bifhjóla sem fara í gengum skoðun án athugasemda þegar þau í raun eiga ekki að öðlast fullnaðarskoðun og á þetta sérstaklega við um landsbyggðina þótt þetta sé þekkt vandamál hér á höfuðborgarsvæðinu líka. Þetta þarf að laga, það þarf að vera hægt að þjónusta skoðun bifhjóla á sama grundvelli og þekkingu og bifreiðar sem og ökutæki eins og vörubifreiðar og rútur. Auk þess þarf að vera til tækjabúnaður á skoðunarstöðvum til að gera prófanir á hemlabúnaði bifhjóla og fleira slíkt. Það þjónar öryggi allra í umferðinni að öll ökutæki séu í lagi og taka þau ökutæki úr umferð sem geta skapað hættu, grundvallaratriðið er að sá sem skoðar ástand bifhjólsins búi yfir þeirri þekkingu sem þarf að hafa til að meta ökutækið.
Hvað víravegriðin varðar sem staðsett eru í Svínahrauni á Suðurlandsvegi, þá mótmæltu Sniglar þeim harðlega. Víravegrið eru stórhættuleg okkur bifhjólafólkinu og getur kostað okkur lífið og alvarlegum áverkum ef við lendum á þeim. Enginn hlífðarfatnaður mun bjarga okkur frá hættum sem skapast af vegriðunum.
Hvað hlífðarfatnað varðar, þá erum við Sniglar á því máli að höfða til skynseminnar hjá bifhjólafólki, klæðast réttum hlífðarfatnaði og nota trausta og viðurkennda hjálma.


