Pistlar

Umferðarráð í 40 ár

föstudagur 23. janúar 2009 kl. 10:37

Umferðarráð hefur verið starfrækt í 40 ár.  Það var stofnað með útgáfu reglugerðar um að stofna skyldi Umferðarmálaráð þann 24. janúar 1969.  Að öllum líkindum hefur mönnum þótt þetta vera eðlilegt framhald af breytingunni í hægri umferð 26. maí árið á undan.  Aldrei frá því að byrjað var að fylgjast með þróun banaslysa í umferðinni á síðustu áratugum hafa jafn fáir látið lífið á götum og vegum landsins eins og það ár.  Hafa menn álitið að sitthvað mætti af því læra.

Lengst framan af má segja að starf Umferðarráðs hafi verið tvískipt, annars vegar að annast daglega umsýslu margra þátta innan málaflokksins og hins vegar er nefndin umferðarráð. Í henni eiga sæti ýmsir fulltrúar stofnana og ráðuneyta, ásamt fulltrúum hagsmunasamtaka og áhugafélaga sem vilja vinna að auknu umferðaröryggi. Hún starfar enn, en hefur aðstöðu á Umferðarstofu. Lengst af einokuðu karlar sæti í Umferðarráði og liðu meira en tveir áratugir þar til fyrsta konan tók þar sæti. Núna eiga fleiri konur sæti í ráðinu en karlar. Þær eru 14, en karlarnir eru 10.

Frá 1969 til ársins 2002 hafði Umferðarráð með höndum umferðarfræðslu, skráningu slysa og margvíslega upplýsingamiðlun um umferðarmál. Einnig var lagaskylda þess að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um málaflokkinn og að styðja aðgerðir sem stuðlað geta að auknu umferðaröryggi. Frá árinu 1993 hefur Umferðarráð borið ábyrgð á málefnum ökukennslu og ökuprófum og Umferðarstofa eftir tilkomu hennar.

Meginverkefni ráðsins hefur alla tíð verið að vinna að auknu umferðaröryggi hér á landi og segja má að á því tímabili sem það hefur starfað hafi banaslysum í umferðinni fækkað umtalsvert sé miðað við fjölda íbúa, miðað við fjölda bíla og um leið ekna kílómetra. Fjöldi látinna hefur allta þetta tímabil verið að meðaltali rúmlega 20 á ári, mest 24,4 síðastliðnum áratug, en minnst 20,7 á árunum 1988 til 1997.

Fjöldi fólks hefur tekið sæti í Umferðarráði í áranna rás, sumir stutt en aðrir talvert lengi. Fyrsti formaður þess var Sigurjón Sigurðsson fyrrverandi lögreglustjóri og gegndi hann því embætti til ársins 1982. Karl V. Matthíasson