Pistlar
Akstur á hálendinu að sumri til
föstudagur 10. júlí 2009 kl. 10:31
Nú þegar sól er hæst á lofti og sumarleyfistími Íslendiga í hámarki leggja margir land undir fót. Hálendi Íslands er vinsæll viðkomustaður og margir, bæði Íslendingar sem erlendir ferðamenn sem leggja leið sína þangað. Eins og náttúran á hálendinu er fjölbreytileg og mögnuð eru íslenskir hálendisvegir það líka.
Á Íslandi eru hálendisvegir yfirleitt mjóir malarvegir, margir hverjir holóttir og margar ár óbrúaðar. Á kortum eru hálendisvegir merktir með F á undan vegnúmerinu og flestir þessara vega eru eingöngu ætlaðir jeppum. Mikilvægt er að kynna sér vel það svæði sem aka á um og þá með tilliti til færðar og ástands vegarins. Upplýsingar um ástand hálendisvega er hægt að fá í síma 1777 eða á www.vegagerðin.is. Einnig er mikilvægt að kynna sér hvar má keyra um og hvaða leiðir á hálendinu eru opnar, opnunartími hálendisvega fer eftir árferði hverju sinni. Bannað er að aka utan vega og utan merktra slóða vegna þess hversu viðkvæm náttúra landsins er. Hjólför utan vega raska ásýnd landsins auk þess að þau verða oft farvegur fyrir vatn og stuðla þannig að jarðvegs og gróðurrofi.
Að nokkrum hlutum þarf að athuga áður en lagt er af stað. Að sjálfsögðu er nauðsynlegt að athuga með ástand bílsins, og einnig að vera viss um að bíllinn komist þangað sem hugurinn ber mann. Einnig yfirfara búnað bílsins og þá vara- og aukahluti sem vert er að hafa með, s.s varadekk, tappasett, tjakk o.s.frv. Mikilvægt er einnig að kynna sér hvað tryggingar bílsins bæta áður en farið er í ferð á hálendið, kaskótrygging nær ekki yfir tjón sem verður í ám eða vötnum og undirvagn er ekki heldur tryggður. Athuga þarf því aukatryggingu ef ferðast á um hálendið. Áður en lagt er af stað þarf að festa allan farangur tryggilega svo hann hendist ekki til og slasi farþega.
Þegar á hálendið er komið þarf að muna að þar gilda sömu umferðarreglur og í byggð en aksturshraði er töluvert lægri en um 50 til 80 km/klst, en að sjálfsögðu á alltaf að aka eftir aðstæðum hverju sinn og muna það að betra er seint en aldrei. Akstur yfir óbrúaðar ár krefst ýtrustu varúðar. Gott er að hafa í huga að vatnsmagn í jökulám er jafnan minnst að morgni og yfir stærri vatnsföll skal ekki aka einbíla. Ágætis regla er að ef þú treystir þér ekki til að vaða yfir ánna er ekki ráðlagt að aka yfir. Miklar rigningar valda vatnavöxtum svo að ár geta orðið ófærar, jafnvel stórum og vel útbúnum bílum.
Yfir sumartímann eru björgunarsveitir með gæslu á hálendinu, eða frá lokum júní til miðs ágústmánaðar. Björgunarsveitirnar eru staðsettar í Nýjadal í Sprengisandi, við Drekagil, norðan Vatnajökuls, í Landmannalaugum á Fjallabaksleið og á Hveravöllum á Kjalvegi. Hægt er að fá upplýsingar og aðstoð hjá björgunarsveitunum. Einnig eru skála- og landverðir staðsettir víðsvegar um hálendið. Í neyðartilvikum er að sjálfsögðu hringt í 112, símasamband er komið víðast hvar á hálendinu en þó ekki allstaðar. Förum varlega í sumarfríinu og komum heil heim.


