Núllsýn FÍB og Umferðarráðs

þriðjudagur 12. janúar 2010 kl. 13:54

,,Fundur haldinn um umferðaröryggismál í Haukahúsinu í Hafnarfirði 11. janúar 2010 ályktar eftirfarandi:
Fundurinn skorar á stjórnvöld að ljúka framkvæmdum á næstu 12 mánuðum við vegrið á milli akbrauta á þeim 47,2 kílómetrum 2+2 vega á landinu sem enn eru án slíks vegriðs.  Þetta verði gert samhliða öðrum framkvæmdum til að fækka slysum í umferðinni og auka þannig verulega öryggi vegfarenda á íslnskum vegum.
Með aukinni áherslu á umferðaröryggismál styðja stjórnvöld við núllsýn FÍB og Umferðarráðs og taka þannig virkan þátt í að Ísland verði án banaslysa í umferðinni fyrir árið 2015."