Pistlar

föstudagur 10. júlí 2009 kl. 10:31

Akstur á hálendinu að sumri til

Eftir Sigrúnu Þorsteinsdóttur, sviðsstjóra slysavarnasviðs hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu

Nú þegar sól er hæst á lofti og sumarleyfistími Íslendiga í hámarki leggja margir land undir fót. Hálendi Íslands er vinsæll viðkomustaður og margir, bæði Íslendingar sem erlendir ferðamenn sem leggja leið sína þangað. Eins og náttúran á hálendinu er fjölbreytileg og mögnuð eru íslenskir hálendisvegir það líka.
Lesa meira...

miðvikudagur 25. mars 2009 kl. 11:53

EuroRAP verkefni til framtíðar?

Eftir Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra FÍB

Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur allt frá stofnun þess árið 1932 unnið að því að efla umferðaröryggi og góða umferðarmenningu í íslensku samfélagi. Undanfarin ár hefur FÍB unnið að rannsóknum á öryggisþáttum í umhverfi íslenskra vega út frá aðferðarfræði European Road Assessment Program eða EuroRAP.
Lesa meira...

föstudagur 23. janúar 2009 kl. 10:37

Umferðarráð í 40 ár

Eftir Karl V. Matthíasson formann Umferðarráðs

Umferðarráð hefur verið starfrækt í 40 ár. Það var stofnað með útgáfu reglugerðar um að stofna skyldi Umferðarmálaráð þann 24. janúar 1969. Að öllum líkindum hefur mönnum þótt þetta vera eðlilegt framhald af breytingunni í hægri umferð 26. maí árið á undan. Aldrei frá því að byrjað var að fylgjast með þróun banaslysa í umferðinni á síðustu áratugum hafa jafn fáir látið lífið á götum og vegum landsins eins og það ár. Hafa menn álitið að sitthvað mætti af því læra.
Lesa meira...

fimmtudagur 11. desember 2008 kl. 10:10

Eftir einn ei aki neinn

Eftir Guðmund Karl Einarsson, fulltrúa Bindindisfélags ökumanna í Umferðarráði

"Mamma, mamma, hvenær kemur pabbi heim?" Hvernig er hægt að útskýra fyrir 5 ára barni að pabbi muni ekki koma heim á næstunni? Að hann hafi lent í alvarlegu umferðarslysi sem rekja má til ölvunaraksturs og sé heppinn að vera á lífi?
Á síðasta ári slösuðust 1658 í umferðarslysum á Íslandi, þar af 195 alvarlega. 79 einstaklingar slösuðust í umferðarslysum þar sem orsökin er rakin til ölvunaraksturs. Þrír til viðbótar létust vegna ölvunaraksturs (upplýsingar af www.us.is)
Lesa meira...

fimmtudagur 20. nóvember 2008 kl. 13:40

Öryggi bifhjóla

Eftir Indu Björk Alexandersdóttur, fulltrúa Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Sniglar, í Umferðarráði

Það er að svo mörgu að hyggja þegar talað er um öryggi bifhjóla, Það sem bifhjólafólk hafa unnið að í mörg ár er umferðarátak ár hvert, það eru settar auglýsingar í kvikmyndahús, í fjölmiðla, aftan á strætisvagna og svo lengi má telja. Herjað er á að klæðast fyrir fallið, minnka hraðann og síðast en ekki síst minnt aðra í umferðinni á okkur bifhjólafólkið.
Þegar kemur að öryggi okkar bifhjólafólks þá er mér helst í huga þrennt. Árleg skoðun bifhjóla, víravegriðin og hlífðarfatnaður.
Lesa meira...

föstudagur 31. október 2008 kl. 14:32

Verum upplýst

Eftir Ástgeir Þorsteinsson fulltrúa Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra í Umferðarráði

Nú fer sá tími í hönd þegar skammdegið er hvað mest og helst er hætta á slysum á gangandi vegfarendum. Ökumenn þurfa á þessum tíma að gæta að hvort ljósabúnaður bifreiða þeirra sé í fullkomnu lagi og gera bætur á því ef með þarf. Þegar snjóað hefur áður en lagt er af stað þurfa ökumenn að hreinsa snjóinn vel af bílum sínum og þá sérstaklega rúðum og ökuljósum. Eins er brýnt að hreinsa rúðuþurrkur vel því að á þessum tíma vilja þær safna á sig tjöru sem gerir það að verkum að ökumenn fá ekki það útsýni sem þeir þurfa til að alls öryggis sé gætt.
Lesa meira...

þriðjudagur 15. júlí 2008 kl. 15:26

Umferðin er stór þáttur í lífi okkar.

Eftir Karl V. Matthíasson, formann Umferðarráðs

Hvar sem við lítum er fólk á ferð - í umferð. Þjóðin ver þar miklum tíma á degi hverjum. Því er mjög mikilvægt að umferðin sé örugg, að okkur líði þar vel.

Umferðin er samskipti fólks, mjög náin og skiptir öllu máli að þau séu jákvæð, að við sýnum hvert öðru kurteisi og velvild. Í umferðinni ættum við að hafa Gullnu regluna að leiðarljósi: "Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra".
Lesa meira...

mánudagur 26. maí 2008 kl. 08:00

Fjórir áratugir frá H-deginum

Eftir Kristján L. Möller samgönguráðherra

Það var djörf ákvörðun að taka upp hægri handar akstur á Íslandi árið 1968. Djörf vegna þess að það hefði verið miklu auðveldara að halda bara áfram óbreyttum sið - og kostað ekkert. En þetta var líka rökrétt ákvörðun. Í nágrannalöndum og helstu viðskiptalöndum nema Bretlandi er hægri umferð og bílamarkaður miðast einkum við það og því var sjálfsagt að Ísland væri í þeim hópi.

Breytingin og H-dagurinn gáfu líka tækifæri til þess að efla mjög og auka alla umferðarfræðslu og áróður og var það gert óspart. Dagurinn fór ekki framhjá neinum og þann dag og lengi á eftir var hámarkshraði í landinu lækkaður til að menn væru varkárir og við öllu búnir. Þá var líka minni hætta á alvarlegum afleiðingum jafnvel þótt einhver gleymdi sér og leitaði til vinstri.

Hins vegar var furðu lítið um að eitthvað færi úrskeiðis. Breytingin gekk ótrúlega vel fyrir sig og mjög fljótlega var eins og þetta hefði alltaf verið svona.

Um leið jókst sjálfstraustið og hraðinn í umferðinni sömuleiðis og kannski má segja að áhrifin af fræðslu og áróðri hafi fjarað of fljótt út. Eftir að landsmenn fengu að upplifa eitt besta ár fyrr og síðar með fæst banaslys og önnur slys sótti smám saman í sama farið og áður. Árið fyrir breytinguna, 1967 létust 27 í umferðinni en þeim fækkaði í 8 árið 1968. Aftur fjölgaði banaslysunum árið eftir breytinguna þegar þau voru 14 og síðan 21 árið 1970.
Lesa meira...