Ýmis fróðleikur

1903 veitti Alþingi Ditlev Thomsen konsúl og kaupmanni styrk að upphæð 2.000 kr til að gera tilraunir með hvort hægt væri að nota bifreiðir á vegum hér á landi. Hún kom til landsins 1904 og var notuð á götum Reykjavíkur. Einnig var henni ekið til Hafnarfjarðar, Eyrabakka og Stokkseyrar. Hún reyndist ekki vel, bilaði oft og var of kraftlítil til að komast upp brattar brekkur. Hún var send úr landi aftur.

Segja má að bílaöld hafi hafist 1913 en þá voru nokkrar bifreiðir fluttar til landsins og menn almennt sammála því að þær ættu framtíð fyrir sér hér á landi. Til að fá smá innsýn í þetta upphaf og þau ár sem síðan eru liðin er hér vísir að safni eldri laga, reglugerða og frétta

 

Hin síðustu ár hefur verið mikil gróska í rannsóknum er tengjast umferðaröryggismálum innanlands sem og erlendis. Það að leita nýrrar þekkingar skiptir miklu máli í framþróun. Árið 2000 tók Rannsóknarráð umferðaröryggismála til starfa og var það mikill hvati að fjölbreyttum innlendum rannsóknum. Markmið RANNUM var m.a. að gera rannsóknir faglegri og markvissari, nýta fjármuni á sem skilvirkastan hátt og stuðla að því að niðurstöður rannsóknar nýttust til beinna aðgerða og aukins umferðaröryggis almennt. Með tilkomu vefsins hefur miðlun þekkingar orðið miklu auðveldari en áður og er hér birtar innlendar skýrslur, bæði eldri og yngri.

 

Á síðustu öld lét Umferðarráð vinna og birta margvíslegar auglýsingar um umferðarmál fyrir miðla þess tíma. Eilítið er sýnt af þeim hér.