Handhafar gullmerkis Umferðarráðs

Handhafar gullmerkis Umferðarstofu eru eftirtaldir einstaklingar:

  1. Sigurjón Sigurðsson, fyrrverandi lögreglustjóri í Reykjavík og fyrsti formaður Umferðarráðs, 1. mars 1969 – 31. desember 1982. Merkið veitt á hátíðarfundi á Selfossi, 26. maí 1993 í tilefni af 25 ára afmæli hægri umferðar á Íslandi.
  2. Valgarð Briem hrl., formaður framkvæmdanefndar hægri umferðar 1968 og formaður Umferðarráðs 1. janúar 1983 – 28. febrúar 1990. Merkið veitt á hátíðarfundi á Selfossi. 26. maí 1993 í tilefni af 25 ára afmæli hægri umferðar á Íslandi.
  3. Arinbjörn Kolbeinsson læknir, formaður FÍB 1960-1970 og 1980-1993, fulltrúi í Umferðarráði á fyrsta skipunartíma þess og átti sæti í rann-sóknarefnd umferðarslysa árin 1963 – 1965. Merkið veitt á 25 ára afmæli Umferðarráðs, 24. janúar 1994, í fundarsal Umferðarráðs, Borgartúni 33, Reykjavík. 
  4. Einar B. Pálsson prófessor, kennari í skipulags- og samgöngumálum, sat m.a. í framkvæmdanefnd hægri umferðar og í umferðarnefnd Reykja-víkur. Merkið veitt á 25 ára afmæli Umferðarráðs, 24. janúar 1994, í fundarsal Umferðarráðs, Borgartúni 33, Reykjavík. 
  5. Ólafur Ólafsson landlæknir, fyrsti formaður Slysavarnaráðs og fulltrúi í Umferðarráði 1990 – 2002. Merkið veitt á hátíðarfundi í Perlunni 26. ágúst 1998 við upphaf ráðstefnu lækna o.fl. um slysavarnir. 
  6. Sigurður E. Ágústsson, fyrrverandi fulltrúi hjá Umferðarráði og lögreglu-varðstjóri í Reykjavík. Merkið veitt á áttræðisafmæli hans á Hótel Loftleiðum, 29. janúar 2001. 
  7. Ólafur W. Stefánsson, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og varaformaður Umferðarráðs 19. maí 1970 – 28. febrúar 1972 og 1. mars 1988 – 28. febrúar 2002. Merkið veitt í kveðjuhófi sem Umferðarráð hélt í Borgartúni 6, 24. apríl 2002. 
  8. Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri og formaður Umferðarráðs 1. júní 1992 – 28. febrúar 2002. Merkið veitt í kveðjuhófi sem Umferðarráð hélt í Borgartúni 6, 24. apríl 2002. 
  9. Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri og formaður Umferðarráðs 1. mars 2002 til 30. September 2006. Merkið var afhent á Umferðarþingi 23. nóvember árið 2006.
  10. Guðný María Finnsdóttir, fyrrverandi fræðslufulltrúi hjá Umferðarráði. Merkið veitt á 40 ára afmæli H dagsins í Þjóðmenningarhúsinu og afhent af samgönguráðherra Kristjáni L. Möller.
  11. Margrét Hrefna Sæmundsdóttir, fyrrverandi fræðslufulltrúi hjá Umferðarráði. Merkið veitt á 40 ára afmæli H dagsins í Þjóðmenningarhúsinu og afhent af samgönguráðherra Kristjáni L. Möller.