Viðurkenning
- Umferðarljósið er verðlaunagripur sem Umferðarráð veitir þeim sem unnið hafa sérstaklega árangursríkt og/eða eftirtektarvert starf á sviði umferðaröryggismála. Megintilgangur verðlaunanna er að hvetja til góðra og þýðingarmikilla starfa sem stuðla að betri og öruggari umferð. Umferðarljósið skal veita einstaklingi, félagi, fyrirtæki, samtökum, stofnun eða öðrum þegar ástæða þykir til.
Umferðarljósið er farandgripur í eigu Umferðarráðs. Veiting hans fer fram á Umferðarþingi og varðveitir verðlaunahafi hann í eitt ár, eða til næsta þings. Með Umferðarljósinu er verðlaunahafa jafnframt afhendt til eignar áletraðan táknrænan grip sem staðfestir að hann hafi hlotið Umferðarljósið tiltekið ár.
Sérstök úthlutunarnefnd ákveður hvenær og hverjum Umferðarljósið er veitt. Nefndin skal skipuð formanni og framkvæmdastjóra Umferðarráðs og einum fulltrúa sem Umferðarráð kýs úr sínum hópi í upphafi hvers skipunartímabils.
Hverjir hafa fengið Umferðarljósið – viðurkenningu Umferðarráðs má sjá hér.
- Merki Umferðarráðs er úr gulli. Kveikt á stunguprjón með smellu og notist sem barmmerki.
Stjórn Umferðarráðs ákveður hverjum skuli veita gullmerki ráðsins. Merkið skal veita einstaklingi sem unnið hefur sérstaklega merkt starf á sviði umferðaröryggismála. Merkið skal veita þegar sérstakt tilefni er til. Halda skal skrá yfir hverjir fá merkið, hvenær og af hvaða tilefni.
Hverjir eru handhafar gullmerkis Umferðarstofu má sjá hér:


