Rannsóknarráð umferðaröryggismála
20. desember 2000 var undirritaður stofnsamningur Rannsóknarráðs umferðaröryggismála. Hlutverk Rannsóknarráðs umferðaröryggismála varr að standa fyrir hvers konar rannsóknum sem nýta mátti til að koma í veg fyrir umferðarslys og draga úr afleiðingum slysa. Ráðinu var ætlað að hvetja til, eiga frumkvæði að, skipuleggja, framkvæma og styðja rannsóknir á sviði umferðaröryggis, ásamt því að fylgjast með erlendum rannsóknum og kanna notagildi þeirra fyrir íslenskt samfélag. Þá átti ráðið að kanna og stuðla að aukinni þekkingu almennings í skyndihjálp. Fyrstu árin var starfsemin vistuð á skrifstofu Umferðarráðs.
Miðað var við að þetta átaksverkefni stæði í u.þ.b. 5 ár.
Aðilar að stofnsamingi Rannsóknarráðs umferðaröryggismála voru:
- Vegagerðin
- Rauði kross Íslands
- Landspítali - háskólasjúkrahús
- Umferðrráð
- Ríkislögreglustjóri
- Skráningarstofan
- Rannsóknarnefnd umferðarslysa
- Reykjavíkurborg
- Háskóli Íslands
- Háskólinn í Reykjavík
- Háskólinn á Akureyri
- Samband íslenskra tryggingafélaga
- Landlæknir
- Félag íslenskra bifreiðaeigenda
- Tækniskóli Íslands
- Ökukennarafélag Íslands
- Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins
Þrátt fyrir það að RANNUM samstarfinu sé lokið, verður enn þá veitt fé úr rannsókna- og þróunarsjóði Vegagerðarinnar til rannsókna á þessu sviði.
RANNUM styrkti alls 89 rannsóknarverkefni á sviði umferðaröryggis og má nálgast þær skýrslur hér.


